Eitthvað sem þú sagðir mér
Þegar ég var of ungur til að skilja,
Heyrði allt sem ég vildi
Og hugsaði með mér:
"Ég mun aldrei gera;
Sömu mistökin."
En hér er ég,
Með troðfullar hendur
Af þrá og eftirsjá.
Ég er hér enn
Þótt margstunginn í bakið
Og alblóðugur.
Berskjaldaður
Ég horfi fram á við
Glorhungraður
Ég skil ekkert eftir
Óblygðaður
Ég geri það sem ég vil.
Ævafornar rústir fortíðar
Grafa sig upp og endurvekja
Minningar um týnda tíma,
Tíminn bregst og endurtekur sig
Stoðir veruleikans svigna
Af svikulum gjörðum þínum.
Tómarúm kulda og myrkurs
Veittu mér þinn styrk
Eilífa gyðja ljóss,
Tímarúm hið dulda angurs
Hneigðu þig og krjúptu
Eilífi Drottinn Holds.
When you enter the blue hell, you are frozen, unable to get out. That ability that this album has to catch you and not let you go is what I applaud the most about this band. One more life experience, but an ordinary experience, an atmospheric and depressing journey, difficult to forget. Frank Román